|
|
|
14.07.2006 17:40 | Almennt ACT ALONE 2006 VAR EINLEIKIN Alls voru sýndir 13 einleikir á ACT ALONE 2006 og er óhætt að segja að fjölbreytileiki verkanna hafi verið mikill og hafi gefið góða mynd á hversu fjölbreytt einleikjaformið er. Boðið var uppá tvö leiklistarnámskeið og var einnig fullsetið á þeim. Ole Brekke, skólastjóri The commedia school í Kaupmannahöfn, var með námskeið í kómedíu og grímuleik þar sem meðal annars var unnið með Commedia dell'Arte grímur. Seinna námskeiðið var með króatíska leikaranum Zeljko Vukmirca sem kenndi uppistand og trúð. Námskeiðin komu mjög vel út og eru þau komin til að vera á ACT ALONE og verða fastur liður í dagskránni hér eftir. Síðast en ekki síst var haldin bókamarkaður á ACT ALONE 2006. Boðið var uppá bækur sem tengjast leiklist allt frá leikritum til ævisagna leikara og leikhúslistamanna. Markaðurinn setti skemmtilegan svip á hátíðina og aldrei að vita nema hann verði einnig fastur liður í ACT ALONE framvegis. Hvað aðsókn á hátíðina varðar þá varð gífurlega aukning á henni og nánast alltaf stútfullt leikhús. Þó nokkuð var um að gestir kæmu að og er það mikið fagnaðarefni að fólk komi hingað í einleikjabæinn og taki þátt í hátíðinni með okkur. Vestfirðingar sýndu hátíðinni mikinn hlýhug og voru duglegir að sækja hátíðina. Allir voru líka boðnir og búnir við allrahanda reddingar sem fylgir hátíð sem þessari. Kómedíuleikhúsið þakkar öllum Vestfirðingum sem og hátiðargestum fyrir aðstoðina og frábæra ACT ALONE helgi. Þið eru æðisleg og ykkar framlag er ómetanlegt. ACT ALONE er sannarlega komin til að vera þökk sé ykkur og öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa gert ævintýrið að veruleika. Undibúningur fyrir ACT ALONE 2007 er þegar hafin og hefur verið ákveðið að lengja hátíðina um einn dag og mun því ævintýrið standa yfir í fimm daga. ACT ALONE 2007 verður haldin dagana 27. júní - 1. júlí. Þeir sem vilja koma með einleik á hátíðina eða eru með hugmyndir fyrir ACT ALONE 2007 er velkomið að senda okkur línu á netfangið komedia@komedia.is Öllum erindum verður svarað og við hlökkum til að heyra frá ykkur. Gerum ACT ALONE að enn betri hátíð. Einleikin kveðja frá ísó! Elfar Logi Hannesson |
|