14. til
16. įgśst 2009

Forsķša
DAGSKRĮ ACT ALONE 2010
Styrktarašilar 2010
Um hįtķšina
Einleikin vištöl
Taka žįtt
Um einleiki
Kómedķuleikhśsiš
Tenglar
English
Myndasafn
Hafa samband





Notandi:
Lykilorš:
Kómedķuleikhśsiš
gislisursson.jpgKómedíuleikhúsið á Ísafirði stendur fyrir ACT ALONE og stjórnandi þess er einleikarinn Elfar Logi Hannesson. Kómedíuleikhúsið er fyrsta atvinnuleikhúsið á Vestfjörðum. Leikhúsið var stofnað árið 1997 og á fyrsta starfsári voru settir á svið nokkur verk. Síðan 2001 hefur Kómedíuleikhúsið einbeitt sér að einleikjum. Fyrsti leikurinn var Leikur án orða eftir Samuel Beckett, síðan komu sjö leikir úr smiðju leikhússins Muggur (2002), Steinn Steinarr (2003) og Gísli Súrsson (2005) sem hefur verið sýndur yfir 170 sinnum. Ári síðar frumsýndi Kómedíuleikhúsið leikinn Dimmalimm sem er byggður á samnefndri sögu eftir Mugg. Fimmti Kómíski einleikurinn er Skrímsli (2007) og sama ár frumsýndi Kómedía jólaleikinn Jólasveinar Grýlusynir eftir Elfar Loga og Soffíu Vagnsdóttur. Nýjasti einleikur Kómedíuleikhússins er Pétur og Einar eftir og í leikstjórn Soffíu Vagnsdóttur. Kómedía hefur einnig setti upp tvo tvíleiki Ég bið að heilsa (2007) og Búlúlala (2008) sem báðir eru með Elfari Loga og Þresti Jóhannessyni. Sumarið 2006 gaf Kómedíuleikhúsið út bókina Íslenskir einleikir sem hefur að geyma 11 leiki. Einnig hefur leikhúsið gefið út bókina Leikræn tjáning en hún er löngu uppseld. Kómedíuleikhúsið stendur einnig að hljóðbókaútgáfu og hefur gefið út fjórar slíkar Þjóðsögur úr Vesturbyggð, Þjóðsögur úr Ísafjarðarbæ, Þjóðsögur úr Bolunarvík og Þjóðsögur af Ströndum. Næsta hljóðbók Kómedíu verður Þjóðsögur frá Súðavík og kemur út á vordögum 2009. Hljóðbækurnar fást í verlsun Kómedíu á heimasíðunni ásamt öðrum útgáfuverkum.