|
|
|
Um hįtķšina Leiklistarhátíðin ACT ALONE er haldin árlega á Ísafirði yfir sumartímann. ACT ALONE er helguð einleikjum og er meðal fárra slíkra í heiminum sem helga sig þessu sérstaka leikhúsformi. Það er ekki eina sérkenni hátíðarinnar því frá upphafi hefur verið ókeypis á ACT ALONE og gefst því fólki frábært tækifæri á að komast frítt í leikhús og um leið að kynna sér þetta sérstaka leikhúsform. ACT ALONE 2009 verður haldin dagana 14. 16. ágúst á Ísafirði. Upphafið að ACT ALONE hátíðinni er stutt og einleikin saga en ævintýrið hefur þó heldur betur verið skrautlegt. Það var í byrjun maí 2004 sem einleikarinn Elfar Logi fékk þá flugu í höfuðið að halda einleikjahátíð á Ísafirði. Hann hafði þá sjálfur leikið í nokkrum einleikjum hjá Kómedíuleikhúsinu. Nú einsog allir vita þá eru Vestfirðingar þekktir fyrir að vera furðufuglar og skjótir til verka. Nokkrum símtölum síðar og ýmiskonar reddingum og pælingum, nánar tiltekið mánuði síðar, var haldin einleikjahátíð á Ísafirði. Hátíðin stóð dagana 24. - 26. júní og var haldin í Hömrum sal Tónlistarskólans á Ísafriði. Á dagskránni voru þrír íslenskir einleikir og einnig var haldin fyrirlestur um einleiksformið. Hátíðin heppnaðist mjög vel og var þegar ákveðið að halda aðra hátíð að ári. Dagskáin var þá mun viðameiri með einum 10 einleikjum þar á meðal var gestaleikur frá Króatíu og að auki voru haldnir fyrirlestrar. Kvikmyndafyrirtækið digi-Film á Ísafirði gerði heimildarmynd um hátíðina. Myndin heitir Leikur einn í leikstjórn Jóhannesar Jónssonar og var myndin sýnd í Sjónvarpinu í október árið 2006. Þriðja ACT ALONE hátíðin var ekki síður einleikin og glæsileg. Boðið var uppá hvorki fleiri né færri en 13 einleiki, tíu íslenska og þrjá erlenda. Óhætt er að segja að sýningarnar hafi verið mjög ólíkar og fjölbreyttar og gáfu góða mynd af því hve margþætt einleikjaformið er. Erlendu gestir hátíðarinnar voru Ole Brekke, frá Danmörku, Zeljko Vukmirica, frá Króatíu, og Eric Bogosian, frá Bandaríkjunum. Segja má að hápúnktur hátíðarinnar hafi verið koma Bogosian en hann er einn fremsti einleikari síðustu aldar. Tvær nýjungar voru á ACT ALONE 2006. Fyrst ber að nefna leiklistarnámskeið sem Ole og Zeljko stýrðu. Einnig var haldin bókamarkaður þar sem í boði voru ýmiskonar verk er tengjast leiklist. Fjórða ACT ALONE hátíðin var mjög vegleg reyndar var dagskráin svo viðamikil að ákveðið var að bæta einum degi við hátíðina. Enda voru sýningar alls 20 talsins auk þess voru haldin leiklistarnámskeið, málþing og fyrirlestur. Fimmta ACT ALONE hátíðin var haldin með miklum bravúr árið 2008 þar sem boðið var uppá fleiri sýningar en nokkru sinni áður eða 24 talsins. ACT ALONE er hátíð í stöðugri þróun og hefur verið óhrætt við að fara nýjar leiðir. Sjötta ACT ALONE hátíðin verður haldin á nýjum tíma eða um miðjan ágúst og mun hátíðin standa í 3 daga frá 14. - 16. ágúst 2009. ACT ALONE er sannarlega komin til að vera þökk sé frábærum listamönnum og ekki síður fyrirtækjum og einstaklingum fyrir ómældan stuðning við verkefnið. Gaman er að geta þess að Act alone fékk Menningarverðlaun DV árið 2008. Stjórn ACT ALONE 2009 skipa Jón Páll Hreinsson, Jón Viðar Jónsson, Marsibil G. Kristjánsdóttir og Rebekka A. Ingimundardóttir. Listrænn stjórnandi er Elfar Logi Hannesson. Gerum ACT ALONE að enn betri hátíð og munið að setja hring á dagatalið þegar hátíðin verður haldin. |
|